Endurmenntun Háskóla Íslands, sem hefur verið starfrækt síðan 1983, er í fararbroddi í endur- og símenntun á Íslandi. Hún hefur margþætt tengsl við íslenskt samfélag og teygir anga sína víða.
Hlutverk Endurmenntunar, með öflugri nýsköpun í námsframboði og þjónustu, er að efla hæfni og þekkingu fólks í starfi og einkalífi.
Stefna Endurmenntunar er að vera ávallt eftirsóknarverðasti valkostur fyrirtækja, stofnana og einstaklinga til símenntunar á Íslandi.
Endurmenntun er skilvirkur farvegur fyrir miðlun þekkingar Háskóla Íslands til samfélagsins. Með það að markmiði er unnið með deildum Háskóla Íslands og öðrum samstarfsaðilum.