Intellecta var stofnað árið 2000. Fyrirtækið hefur frá þeim tíma unnið með stjórnendum við það að bæta rekstur og auka verðmæti fyrirtækja.
Intellecta er sjálfstætt þekkingarfyrirtæki sem starfar á þremur megin sviðum: Rekstrarráðgjöf, ráðningar og rannsóknir.
Við höfum sterkan faglegan bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Þennan grunn notum við í samvinnu við viðskiptavini til að móta hugmyndir sem skipta máli og þróa og innleiða lausnir sem skila árangri - hvort sem við erum á fleygiferð í nýjum tækniheimi eða mætum síbreytilegum hversdagsleikanum.