Alfreð tengir saman fólk og fyrirtæki í gegnum app og vefsíðu sem auðveldar bæði atvinnuleit og úrvinnslu umsókna.
Það kostar ekkert að búa til prófíl á Alfreð með upplýsingum um reynslu, menntun og áhugasvið. Hægt er að láta Alfreð vakta fyrir störf og fá tilkynningu þegar spennandi tækifæri er auglýst. Þannig finna tugþúsundir atvinnu á hverju ári.
Með því að kaupa auglýsingu hjá Alfreð fá atvinnurekendur sjálfkrafa aðgang að ráðningarkerfi sem heldur utan um úrvinnslu umsókna. Fyrirtækjum er þó alveg frjálst að beina umsóknum inn í önnur mannauðskerfi og haga úrvinnslunni eftir eigin höfði.
Alfreð er alltaf á tánum við að uppfæra þjónustuna og sníða að þörfum atvinnumarkaðarins, m.a. með tengingum við mannauðskerfi fyrirtækja, auglýsingum á námskeiðum og fleiri leiðum til að vaxa og blómstra í starfi og atvinnurekstri.